Fyrirhugaðar eru viðhaldsframkvæmdir á Þingvallavegi þann 19. júní ef veður leyfir. Vegurinn verður lokaður frá kl. 20:00 – 07:00 daginn eftir, föstudaginn 20. júní. Lokað verður á Þingvallavegi um Mosfellsheiði, frá hringtorginu við Hringveg að Kjósarskarðsvegi.
Hjáleið er um Kjósarskarðsveg og starfsmaður verktaka sér um fylgdarakstur íbúa og þeirra aðila sem þurfa inn á svæðið. Vakt verður við hringtorgið Mosfellsbæjar megin til að leiðbeina vegfarendum.
Beðist er velvirðingar á þeirri röskun sem þessi framkvæmd kann að valda. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.