Nýtt undirlag hefur verið sett við leiktækin og gervigras lagt á sparkvöllinn sem gerir svæðið viðhaldsvænna auk þess sem það nýtist árið um kring. Klifurkofi með rennibraut var settur upp ásamt rólum.
Markmiðið með endurbótunum var að skapa skemmtilegt, öruggt og aðlaðandi leiksvæði fyrir börn og fjölskyldur í hverfinu.
Nú þegar leikvöllurinn er tilbúinn til notkunar á ný mun hann án efa vera vel nýttur af íbúum nærliggjandi hverfa.