Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar var haldinn hátíðlegur í íþróttamiðstöðinni Kletti fimmtudaginn 19. september.
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar var haldinn hátíðlegur í íþróttamiðstöðinni Kletti fimmtudaginn 19. september.
Dagskráin var einkar fjölbreytt en viðfangsefnið var kynjajafnrétti í íþróttum. Í lok dagskrár var veitt Jafnréttisviðurkenning Mosfellsbæjar 2019 en hana hlýtur Þrúður Hjelm skólastjóri Krikaskóla.
Karlmenn um 25% af starfsfólki
Frá því að Krikaskóli var stofnaður árið 2008 hefur Þrúður Hjelm unnið markvisst að því að jafna stöðu kynjanna með því að ráða konur jafnt sem karla í leik- og grunnskólastörf. Hún hefur sérstaklega lagt sig fram við að fjölga karlmönnum í starfsmannahópi sínum en í dag starfa 16 karlmenn í Krikaskóla og eru þeir nú um það bil 25% af starfsfólki skólans.Að minnsta kosti einn karlkyns starfsmaður er starfandi í hverjum árgangi með tveggja til níu ára börnum og sinna karlar einnig íþrótta- og myndlistarkennslu.
Allir eigi jafna möguleika
Krikaskóli er með virka jafnréttis- og framkvæmdaáætlun sem fylgt er eftir og hún endurskoðuð með reglubundnum hætti. Þar kemur meðal annars fram að allir einstaklingar í Krikaskóla skuli eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kynferði.Með viðurkenningunni vill lýðræðis- og mannréttindanefnd Mosfellsbæjar hvetja íbúa og starfsmenn Mosfellsbæjar til að fylgja góðu fordæmi Krikaskóla og benda á mikilvægi þess að fylgja eftir þeim markmiðum sem sett eru á sviði jafnréttismála í samvinnu stjórnenda og starfsmanna.
Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs, Þrúður Hjelm skólastjóri Krikaskóla og Haraldur Sverrisson bæjarstjóri við afhendingu viðurkenningarinnar á Jafnréttisdegi Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023 – framlengdur umsóknarfrestur
Velferðarnefnd, sem fer með hlutverk jafnréttisnefndar, auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023
Velferðarnefnd auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Upptaka frá jafnréttisdegi Mosfellsbæjar 2022
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar var haldinn hátíðlegur í Hlégarði 22. september 2022.