Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
8. janúar 2016

Hin ár­lega þrett­ánda­brenna Mos­fells­bæj­ar verð­ur hald­in laug­ar­dag­inn 9. janú­ar 2016.

Brenn­an er stærsti við­burð­ur í bæn­um á ári hverju þar sem þús­und­ir gesta leggja leið sína í Mos­fells­bæ. Blys­för legg­ur af stað frá mið­bæj­ar­torgi kl. 18:00 og hald­ið að brenn­unni sem verð­ur á sama stað og ár­lega, neð­an Holta­hverf­is við Leir­vog­inn þar sem ára­móta­brenn­an var hald­in.

Vakin er at­hygli á að göngu­leið­ir að brennusvæði hafa all­ar ver­ið sand­að­ar en biðj­um við fólk um vara sig á hálku utan göngu­leiða og á opn­um svæð­um.

Dag­skrá­in verð­ur veg­leg að þessu sinni en fram koma Storm­sveit­in og Skóla­hljóm­sveit Mos­fells­bæj­ar. Álfa­kóng­ur og álfa­drottn­ing, Grýla, Leppal­úða og þeirra hyski verða á svæð­inu.

Björg­un­ar­sveit­in Kyndill verð­ur með glæsi­lega flug­elda­sýn­ingu.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00