Frá og með 1. mars styttir Strætó tímabundið þjónustutíma á kvöldin á völdum leiðum innan höfuðborgarsvæðisins.
Samkomutakmarkanir vegna kórónuveirunnar og skert starfsemi veitingastaða, skemmtistaða og annarra þjónustuaðila hefur haft mikil áhrif á farþegafjölda hjá Strætó seint á kvöldin.
Leið 15 keyrir í Mosfellsbæ og er breytingin á þeirri leið eftirfarandi:
Ferðir sem falla tímabundið niður:
- 00:15 frá Mosfellsbæ
- 00:01 frá Meistaravöllum
Síðustu ferðir eftir breytingu:
- 23:45 frá Mosfellsbæ
- 23:31 frá Meistaravöllum
Tengt efni
Hleðslustöðvarnar átta komnar í notkun
Í sumar var boðin út uppsetning, rekstur og fjölgun hleðslustöðva í Mosfellsbæ.
Endurnýjun og fjölgun hleðslustöðva í Mosfellsbæ
Í sumar var boðin út uppsetning, rekstur og fjölgun hleðslustöðva í Mosfellsbæ.
Aukið umferðaröryggi - Ábendingagátt opin til 1. nóvember 2023
Mosfellsbær vinnur nú að umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið.