Mosfellsbær tekur þátt í Vetrarhátíð og laugardaginn 7. febrúar milli kl. 19:00 – 22:30 verður sundlauganótt í Lágafellslaug.
Hin sívinsæla Wipe-Out braut verður opin. Flott dagskrá í boði, Einar Einstaki með töfrabrögð, Íþróttaálfurinn mætir með spriklandi fjör, hljómsveitin Víó spilar og Basic House Effect sjá um fjörið fram eftir kvöldi.
Frítt inn frá kl. 19:00.
Frábært fyrir fjölskylduna að eiga saman notalega kvöldstund í sundi.
Pylsur og gos á spottprís og ís í boði á leiðinni heim.
Nú drífa allir krakkar og ungmenni foreldrana með sér í sund!
Tengt efni
Syndum, landsátak í sundi hefst 1. nóvember 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2024.
Tilmælum aflétt
Sundlaugar opnuðu í morgun