Haldið verður hátíðlega upp á sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 19. apríl.
Hefst hátíðin á Bæjartorginu þar sem farið verður í skrúðgöngu kl. 13:00 og gengið að íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem verða skátatívolí og hoppukastalar. Hægt verður að gæða sér á heitum vöfflum og grilluðum pylsum í söluvögnum. Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur af sinni alkunnu list. Skátafélagið Mosverjar leiða gönguna.
Mosfellingar fjölmennum og fögnum sumri.