Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er m.a. að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Styrkurinn er fólginn í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar. Fyrir unglinga á grunnskólaaldri er greitt í samræmi við samþykktan taxta Vinnuskólans. Eldri hópurinn fær greitt í samræmi við önnur sumarátaksstörf hjá Mosfellsbæ.
Skilafrestur er til og með 11. mars 2018 og skal umsóknum ásamt fylgigögnum skilað til þjónustuvers Mosfellsbæjar eða rafrænt á mos@mos.is.
Tengt efni
Styrkir til verkefna á sviði velferðarmála fyrir árið 2024
Velferðarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði velferðarmála í Mosfellsbæ.
Umsókn um styrk til náms, verkfæra- og tækjakaupa 2023
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2023.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir
Þriðjudaginn 20. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.