Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumarið 2020.
Öll ungmenni á aldrinum 16-20 ára, (f. 2000, 2001, 2002 og 2003) með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er meðal annars að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Styrkurinn er fólginn í launum frá Mosfellsbæ og greitt í samræmi við önnur sumarstörf hjá Mosfellsbæ.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 20. mars 2020 í gegnum þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Unglingar á aldrinum 13-15 ára
Athygli er vakin á að að unglingum á aldrinum 13-15 ára (f. 2004, 2005 og 2006) sem taka þátt í til dæmis landsliðsverkefnum og/eða verkefnum fyrir félög/félagasamtök á vinnutíma vinnuskóla verður gefinn sá möguleiki að sækja formlega um leyfi á launum á þeim tíma sem að verkefnið varir. Skilyrði er að viðkomandi verði skráður í vinnu í Vinnuskóla Mosfellsbæjar og skili þar lágmarks vinnuframlagi.
Tengt efni
Frumkvöðlar óskast!
Lumar þú á frumlegri hugmynd sem gæti gert gott samfélag enn betra?
Styrkir veittir til efnilegra ungmenna 2024
Á dögunum veitti íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ungmenna á fundi sem haldinn var í Listasal Mosfellsbæjar.
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.