Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
23. febrúar 2018

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar aug­lýs­ir eft­ir um­sókn­um vegna út­hlut­un­ar styrkja til efni­legra ung­menna sem leggja stund á íþrótt­ir, tóm­stund­ir eða list­ir yfir sum­ar­tím­ann.

Öll ung­menni á aldr­in­um 14 til 20 ára, með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sér­staka hæfi­leika á sínu sviði geta sótt um styrk­inn.

Markmið styrks­ins er m.a. að gefa ein­stak­ling­um sömu tæki­færi og jafn­öldr­um þeirra til að njóta launa frá bæn­um á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tóm­st­und yfir sum­ar­tím­ann.

Styrk­ur­inn er fólg­inn í laun­um frá Vinnu­skóla Mos­fells­bæj­ar. Fyr­ir ung­linga á grunn­skóla­aldri er greitt í sam­ræmi við sam­þykkt­an taxta Vinnu­skól­ans. Eldri hóp­ur­inn fær greitt í sam­ræmi við önn­ur sum­ar­átaks­störf hjá Mos­fells­bæ.

Skila­frest­ur er til og með 11. mars 2018 og skal um­sókn­um ásamt fylgigögn­um skilað í þjón­ustu­ver Mos­fells­bæj­ar, 2. hæð Kjarna, eða í tölvu­pósti á mos@mos.is.

Um­sókn­areyðu­blöð, regl­ur um styrk­veit­ingu og all­ar nán­ari upp­lýs­ing­ar er hægt að nálg­ast á vef Mos­fells­bæj­ar.

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00