Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og/eða hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er m.a. að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann.
Styrkurinn er fólginn í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar. Fyrir unglinga á grunnskólaaldri er greitt í samræmi við samþykktan taxta Vinnuskólans. Eldri hópurinn fær greitt í samræmi við önnur sumarátaksstörf hjá Mosfellsbæ.
Skilafrestur er til og með 17. mars 2017.
Tengt efni
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Styrkir til efnilegra ungmenna í Mosfellsbæ 2024 - Umsóknarfrestur til 1. mars
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Styrkir vegna listviðburða og menningarmála árið 2024 - Umsóknarfrestur til 1. mars
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar.