Íþrótta og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stundir á íþróttir, tómstundir eða listir.
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er tvíþætt þ.e. að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, og að gefa einstaklingum tækifæri til að einbeita sér frekar að tómstund sinni, list eða íþrótt til að ná meiri færni og árangri.
Tengt efni
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar afhentur í Hlégarði
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar var afhentur í Hlégarði fimmtudaginn 27. júní.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir 12. júní 2024
Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.
Frumkvöðlar óskast!
Lumar þú á frumlegri hugmynd sem gæti gert gott samfélag enn betra?