Íþrótta- og tómstundanefnd auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir.
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn.
Markmið styrksins er tvíþætt:
- að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann.
- að gefa einstaklingum tækifæri til að einbeita sér frekar að list sinni, íþrótt eða tómstund til að ná meiri færni og árangri.
Íþrótta- og tómstundanefnd horfir til eftirfarandi þátta þegar styrkjum er úthlutað:
- Umsögn þjálfara, kennara eða annars leiðbeinanda umsækjanda þarf að fylgja með umsókninni. Í umsögninni þurfa að koma fram upplýsingar um ástundun, hæfileika, virkni og framkomu umsækjandans.
- Koma þarf fram í umsókninni með hvaða hætti styrkurinn nýtist, hvernig hann auðveldi umsækjanda að stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann og af hverju hann sé umsækjenda mikilvægur til að geta stundað æfingar til að auka færni og ná frekari árangri
- Nefndin skal gæta jafnræðis við val á styrkþegum bæði hvað varðar kynferði sem og milli listgreina og íþrótta- og tómstundagreina. Þessa jafnræðis skal gætt innbyrðis við hverja úthlutun sem og á milli ára.
- Árlega veitir Íþrótta- og tómstundanefnd styrki til 3-5 einstaklinga, breytilegt milli ára þar sem kostnaður fer eftir aldri styrkþega.
Styrkurinn er fólgin í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar. Fyrir unglinga í þeim árgöngum sem starfa í Vinnuskólanum er greitt í samræmi við samþykktan taxta hverju sinni og samsvarar aldri hvers og eins.
Sama gildir um greiðslur til ungmenna sem fá greitt í samræmi við önnur sumarátaksstörf hjá Mosfellsbæ.
Skilafrestur er til og með 31. mars 2011 og umsóknum skal skilað til þjónustuvers Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Styrkir til verkefna á sviði velferðarmála fyrir árið 2025
Umsókn um styrk til náms, verkfæra- og tækjakaupa 2024
Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2024.
Erna Sóley afreksíþróttamaður 2024