Yfir jól og áramót fellur oft til meira sorp frá heimilum en á öðrum tíma ársins.
Það getur því verið ágætt að vita hvenær tunnurnar eru tæmdar.
- Grá tunna, almennt sorp: 23. – 24. desember og 3. – 4. janúar.
- Blá tunna, fyrir pappír: 18. – 21. desember, 30. – 31. desember og 13. – 14. janúar.
Þess má geta að jólapappír má fara í bláu tunnuna.
Á vef Sorpu má sjá afgreiðslutíma endurvinnslustöðva yfir jól og áramót sem og finna góðar upplýsingar um hvað má fara í tunnuna og hvað fer til urðunar og í flokkun hjá Sorpu.
Einnig má benda á grenndargámastöðvar við Bogatanga, Langatanga, Skeiðholt og Dælustöðvarveg, þar sem staðsettir eru gámar fyrir plast og gler.
Hugum að okkar nærumhverfi og verum vistvæn.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar
Tengt efni
Staðan á sorphirðu 4. janúar 2023
Sorphirða í Mosfellsbæ er nú 1-2 dögum á eftir áætlun vegna fannfergis.
Jólatré hirt 6. - 8. janúar 2023
Afturelding hirðir jólatré í Mosfellsbæ 6. – 8. janúar 2023.
Sorphirða um hátíðirnar
Nokkrar raskanir hafa orðið á sorphirðu um hátíðarnar vegna snjókomu og erfiðrar færðar.