Efnt verður til hjólabretta- og BMX hátíðar á Miðbæjartorgi Mosfellsbæjar í dag, 18. september kl. 15:00 – 18:00.
Sett verður upp bretta- og hjólaþrautabraut fyrir krakka þar sem öll eru velkomin að spreyta sig.
Dr. Bæk mætir á staðinn og aðstoðar við hjólastillingar og minniháttar lagfæringar á reiðhjólum. Kl. 15:00 – 17:00
BMX landsliðið sýnir listir sínar og spjallar við gesti. Kl. 16:30 – 18:00
Öll velkomin!
Tengt efni
Vaskir hjólagarpar tóku þátt í BMX hátíð
Hráslagalegt veður stöðvaði ekki vaska hjólagarpa í gær þegar BMX-BRÓS stóðu fyrir BMX-hátíð á Miðbæjartorgi í tengslum við Samgönguviku.
Samgönguvika 16. - 22. september 2023
Við í Mosfellsbæ erum virkir þátttakendur í Samgönguviku og eftirfarandi verður í boði í Mosfellsbæ í vikunni.
Bíllausi dagurinn 22. september 2022
Í dag er bíllausi dagurinn en á þeim degi eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér frekar vistvæna samgöngumáta sé þess kostur.