Í tilefni af samgönguviku í Mosfellsbæ hefur verið sett á vef bæjarins nýtt kort fyrir Mosfellsbæ þar sem afmarkaður er 1,6 km radíus út frá miðbænum sem eru mörk 15 mínútna göngufæris og 6 mínútna hjólafæris.
Kortið er útbúið í samvinnu við reiðhjólasamtökin Hjólafærni og sýnir hversu vegalengdir í Mosfellsbæ eru oftast stuttar og því tilvalið að nýta sér vistvæna samgöngumáta eins og reiðhjól eða gönguferðir.
Tengt efni
Vaskir hjólagarpar tóku þátt í BMX hátíð
Hráslagalegt veður stöðvaði ekki vaska hjólagarpa í gær þegar BMX-BRÓS stóðu fyrir BMX-hátíð á Miðbæjartorgi í tengslum við Samgönguviku.
Samgönguvika 16. - 22. september 2023
Við í Mosfellsbæ erum virkir þátttakendur í Samgönguviku og eftirfarandi verður í boði í Mosfellsbæ í vikunni.
Bíllausi dagurinn 22. september 2022
Í dag er bíllausi dagurinn en á þeim degi eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér frekar vistvæna samgöngumáta sé þess kostur.