Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Evr­ópsk sam­göngu­vika, Europe­an Mobility Week, hefst í dag en vik­an stend­ur yfir 16. – 22. sept­em­ber ár hvert.

Til­gang­ur sam­göngu­vik­unn­ar er að vekja at­hygli á vist­væn­um sam­göng­um og hvetja al­menn­ing til að nýta sér al­menn­ings­sam­göng­ur, hjól­reið­ar og aðra vist­væna far­ar­kosti.

Mos­fells­bær hef­ur ver­ið virk­ur þátt­tak­andi í sam­göngu­vik­unni und­an­farin ár og stað­ið fyr­ir margs kon­ar við­burð­um í til­efni vik­unn­ar, bæði í Mos­fells­bæ og víðs veg­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í sam­starfi við ná­granna­sveit­ar­fé­lög­in. Af við­burð­um í sam­göngu­vik­unni í ár má nefna BMX-há­tíð á mið­bæj­ar­torg­inu, út­gáfu nýs hjóla- og göngu­leiða­korts fyr­ir Mos­fells­bæ, upp­setn­ingu leið­ar­vísa fyr­ir hjól­reiða­stíga, vígslu raf­hleðslu­stöðva og mál­þing um vist­væn­ar sam­göng­ur.

Mos­fell­ing­ar eru hvatt­ir til að taka þátt í þessu ár­lega átaki, draga fram hjól­ið og njóta góðr­ar úti­veru og heilsu­sam­legr­ar hreyf­ing­ar.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00