Í dag hefst Evrópsk samgönguvika, European Mobility Week, en vikan stendur yfir 16. – 22. september ár hvert.
Samgönguvikunni í ár er ýtt úr vör með vistvænni netkönnun á samfélagsmiðlum: Hvaða samgöngukrútt ert þú? Allir eru hvattir til að taka þátt, niðurstaðan gæti komið skemmtilega á óvart.
Af viðburðum í samgönguvikunni í ár má nefna BMX-hátíð á miðbæjartorginu, kynningu á hjólakortum af höfuðborgarsvæðinu og fríar hjólastillingar og smáviðgerðir.
Mosfellsbær hefur verið virkur þátttakandi í samgönguvikunni undanfarin ár og staðið fyrir margs konar viðburðum í tilefni vikunnar, bæði í Mosfellsbæ og víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við nágrannasveitarfélögin og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Tilgangur samgönguvikunnar er að vekja athygli á vistvænum samgöngum og hvetja almenning til að nýta sér almenningssamgöngur, hjólreiðar og aðra vistvæna fararkosti. Mosfellingar eru hvattir til að taka þátt í þessu árlega átaki, draga fram hjólið og njóta góðrar útiveru og heilsusamlegrar hreyfingar.
Tengt efni
Bíllausi dagurinn 22. september 2022
Í dag er bíllausi dagurinn en á þeim degi eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér frekar vistvæna samgöngumáta sé þess kostur.
Hjólið þitt með Dr. BÆK kl. 15:00 - 17:00
Miðbæjartorg Mosfellsbæjar miðvikudaginn 21. september kl. 15:00 til 17:00.
BMX-dagur á Miðbæjartorginu kl. 17:30 - 19:30
BMX-brós sýna listir sínar á miðbæjartorgi Mosfellsbæjar í dag, þriðjudaginn 20. september, kl. 17:30 – 19:30.