Nú er nýlokið í Mosfellsbæ alþjóðlegri samgönguviku, sem fram fer dagana 16. – 22. september á hverju ári um alla Evrópu.
Mosfellsbær tók að venju virkan þátt í samgönguvikunni með ýmsum viðburðum. Haldið var málþing um vistvænar samgöngur, nýtt aðkomutákn vígt við samgöngustíginn við Vesturlandsveg, Dr. Bæk aðstoðaði við hjólastillingar og haldin var BMX-dagur þar sem snillingarnir í BMX-brós sýndu listir sínar á miðbæjartorginu.