Miðvikudaginn, 21. september verður boðið uppá fríar hjólastillingar á miðbæjartorginu frá kl. 15-17 í tilefni af Samgönguviku í Mosfellsbæ.
Dr. Bæk mun þá mæta á svæðið og aðstoða við stillingar á gírum og bremsum, smyr keðjur og pumpar í dekk, ásamt því að aðstoða við minniháttar lagfæringar. Hjóleigendur eru hvattir til að koma við og fá fría ástandsskoðun.