Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
25. febrúar 2021

Markmið Klöru­sjóðs er að stuðla að fram­þró­un á skóla- og frí­stund­astarfi í Mos­fells­bæ.

Sjóð­ur­inn er ætl­að­ur til að styrkja verk­efni sem unn­in eru í ein­stök­um skóla eða í sam­starfi á milli skóla. Heild­ar fram­lag til sjóðs­ins árið 2021 eru tvær millj­ón­ir og í ár er áhersl­an lögð á fjöl­breytta kennslu­hætti. Sam­kvæmt regl­um sjóðs­ins er út­hlutað einu sinni á ári.

Hægt er að sækja um í sjóð­inn á þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar til 15. apríl.

Í ný­sköp­un­ar- og þró­un­ar­sjóð­inn geta sótt ein­staka kenn­ar­ar, kenn­ara­hóp­ar, aðr­ir fag­að­il­ar sem starfa við skóla/frí­stund í Mos­fells­bæ, einn skóli eða fleiri skól­ar/fag­að­il­ar í sam­ein­ingu sem og fræðslu- og frí­stunda­svið í sam­starfi við skóla.

    Nafn sjóðs­ins er Klöru­sjóð­ur, til heið­urs Klöru Klængs­dótt­ur (1920-2011). Klara út­skrif­að­ist frá Kenn­ara­skóla Ís­lands árið 1939 og hóf sama ár kennslu við Brú­ar­lands­skóla. Hún starf­aði alla sína starfsævi sem kenn­ari í Mos­fells­bæ.

    Tengt efni

    Netspjall

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-12:00

    Þjónustuver 525-6700

    Opið virka daga
    mán. – fim. 8:00-16:00
    fös. 8:00-12:00