Frístundaávísanir fyrir veturinn 2012-2013 verða virkar frá 1. september 2012.
Vakin er athygli þeirra sem ekki hafa enn nýtt sér frístundaávísanir fyrir núverandi tímabil 2011-2012 að þær fyrnast þegar nýtt tímabil tekur við.
Sótt er um frístundaávísun á íbúagátt Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær gefur forráðamönnum allra barna og unglinga á aldrinum 6-18 ára, árgangar 1995-2006, með lögheimili í Mosfellsbæ kost á frístundaávísun að upphæð 15.000 kr. sem hægt er að nota til að greiða fyrir hvers konar frístundastarf hjá viðurkenndum frístundafélögum eða frístundastofnunum.
Tengt efni
Opnað fyrir nýtingu frístundaávísana allt árið
Fjölbreytt og skemmtilegt starf í Tröllabæ
Frístundaávísun hækkar
Þann 15. ágúst hófst nýtt tímabil frístundaávísunar í Mosfellsbæ.