Mosfellsbær hefur tekið í notkun nýjar hjólreiðamerkingar á aðal hjólreiðastígum bæjarins.
Um er að ræða sérstök hjólaskilti sem leiðbeina hjólreiðafólki tvær lykilleiðir í bænum, annars vegar í gegnum miðbæ Mosfellsbæjar með tengingu við samgöngustíginn meðfram Vesturlandsvegi til Reykjavíkur (Gul leið), og hins vegar strandleið sem tengist Reykjavík við Úlfarsá og hægt er að hjóla í kringum allt höfuðborgarsvæðið meðfram ströndinni (Blá leið).
Þegar er búið að setja leiðarvísa á gulu leiðina í gegnum miðbæinn og til Reykjavíkur og unnið er að því að merkja strandleiðina. Merkingar lykilleiða hjólreiða er samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og til þess ætlað að gera hjólreiðar aðgengilegri fyrir almenning og auðvelda visvænar samgöngur milli sveitarfélaganna.
Tengt efni
Næturstrætó hefur aftur akstur til Mosfellsbæjar
Helgina 25. – 27. ágúst 2023 mun næturstrætó hefja akstur til Mosfellsbæjar á leið 106.
Rafskútur Hopp komnar í Mosfellsbæ
Mosfellsbær og Hopp hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um rekstur á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur í Mosfellsbæ.
Tilkynning vegna hjáleiðar Strætó á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta, 20. apríl fer skrúðganga frá Þverholti um Skeiðholt og Skólabraut.