Laugardaginn 17. september mun Mosfellsbæ, í samstarfi við LexGames, opna nýja pumptrack hjólaþrautabraut á Miðbæjartorgi Mosfellsbæjar í tilefni af samgönguviku í Mosfellsbæ.
Um er að ræða braut sem hentar jafnt reiðhjólum, hlaupahjólum, BMX-hjólum, hjólabrettum og hjólaskautum. Hjólabrautin er hugsuð sem góð viðbót fyrir stækkandi hóp ungmenna sem stunda þessar íþróttir og hvatning til aukinnar útivistar.
Brautin verður staðsett á Miðbæjartorginu fram yfir samgönguvikuna, en verður síðan flutt á varanlega stað sinn við íþróttamiðstöðina við Varmá.
Tengt efni
Vaskir hjólagarpar tóku þátt í BMX hátíð
Hráslagalegt veður stöðvaði ekki vaska hjólagarpa í gær þegar BMX-BRÓS stóðu fyrir BMX-hátíð á Miðbæjartorgi í tengslum við Samgönguviku.
Samgönguvika 16. - 22. september 2023
Við í Mosfellsbæ erum virkir þátttakendur í Samgönguviku og eftirfarandi verður í boði í Mosfellsbæ í vikunni.
Bíllausi dagurinn 22. september 2022
Í dag er bíllausi dagurinn en á þeim degi eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér frekar vistvæna samgöngumáta sé þess kostur.