Föstudaginn 18. september verður haldið málþing um vistvænar samgöngur undir yfirskriftinni „Hjólum til framtíðar“.
Málþingið er haldið í Smárabíói í Smáralind og stendur frá kl. 9:00-16:00, og er í samstarfi Landsamtaka hjólreiðamanna, Hjólafærni á Íslandi og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölbreytt úrval innlendra og erlendra fyrirlesara. Hægt er að skrá sig á málþingið á vef Landsamtaka hjólreiðamanna.