Miðvikudagskvöldið 23. júní og aðfaranótt fimmtudags 24. júní er stefnt á að malbika kafla á Þingvallavegi á milli Vinaskógar og Skálabrekkuvegar.
Kaflinn er um 1.120m og verður Þingvallavegi lokað meðan á framkvæmdum stendur og viðeigandi merkingar og hjáleiðir settar upp til samræmis við neðangreinda myndir.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 06:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Tengt efni
Framkvæmdir við sparkvöll hjá Varmárskóla að hefjast
Framkvæmdir við nýjan upphitaðan sparkvöll á skólalóð Varmárskóla hefjast í vikunni og eru þær í höndum fyrirtækisins Vargur ehf.
Viðgerð á hraðahindrun - Bogatangi
Framkvæmdir við leikskólann Reykjakot