Á morgun miðvikudaginn 25. júlí frá kl. 09:00 er stefnt að malbikun Baugshlíðar milli hringtorga við Álfatanga og Þrastarhöfða. Hjáleið verður um Vesturlandsveg en ávallt verður fært inn Arnarhöfða úr hvorri átt.
Ofangreindar framkvæmdir eru háðar veðri og geta því dregist á langinn en vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við vinnusvæðið.