Kveikt verður á jólatré Mosfellsbæjar fyrsta laugardag í aðventu, þann 30. nóvember kl. 16:00 á Miðbæjartorginu.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilar, leikskólabörn aðstoða bæjarstjóra við að kveikja á jólatrénu og Skólakór Varmárskóla syngur. Gera má ráð fyrir að einhverjir jólasveinanna muni kíkja á okkur ofan úr Esjunni þennan dag til dansa í kringum tréð með börnunum. Eftir að dansað hefur verið í kringum jólatréð verður haldið inn í Kjarna þar sem Kammerkór Mosfellsbæjar mun syngja nokkur lög og félagar úr knattspyrnudeild Aftjureldingar sjá um kakó-, kaffi- og vöfflusölu svo enginn þurfi að fara kaldur né svangur heim.