Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
26. nóvember 2018

Laug­ar­dag­inn 1. des­em­ber verða ljós­in tendr­uð á jólatré Mos­fells­bæj­ar við há­tíð­lega at­höfn á Mið­bæj­ar­torg­inu kl. 16:00.

Tendr­un ljós­anna á jóla­trénu á mið­bæj­ar­torg­inu hef­ur um ára­bil markað upp­haf jóla­halds í bæn­um og á sér fast­an sess í hjört­um bæj­ar­búa sem fjöl­menna á við­burð­inn ár hvert.

Skóla­kór Varmár­skóla ásamt skóla­hljóm­sveit Mos­fells­bæj­ar spil­ar fyr­ir gesti og gang­andi, Matti Matt tek­ur nokk­ur jóla­lög og gera má ráð fyr­ir að ein­hverj­ir jóla­svein­anna muni koma ofan úr Esju þenn­an dag til að dansa í kring­um tréð með börn­un­um.

Eft­ir að dansað hef­ur ver­ið í kring­um jóla­tréð verð­ur hald­ið inn í Kjarna þar sem Kammerkór Mos­fells­bæj­ar mun syngja lög ásamt strengja­sveit Lista­skóla Mos­fells­bæj­ar og Barnakór Lága­fell­skóla.

4. flokk­ur kvenna í knatt­spyrnu í Aft­ur­eld­ingu sér um sölu á heitu kakó, kaffi og vöffl­um og jóla Pop-up mark­að­ur er op­inn í Kjarna frá kl. 12:00-18:00.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00