Opið er fyrir umsóknir vegna sýningarhalds í Listasal Mosfellsbæjar á árinu 2016.
Óskað er eftir umsóknum um einka- og samsýningar.
Listasalur Mosfellsbæjar er fjölnota salur í Bókasafni Mosfellsbæjar og er lánaður endurgjaldslaust til sýnenda.
Nánari upplýsingar og eyðublöð má finna á vef Bókasafns Mosfellsbæjar eða í síma 566-6822.
Með umsókn skulu fylgja með myndir af verkum, ferilskrá og lýsing á fyrirhugaðri sýningu.
Umsóknir skulu vera vandaðar og berast fyrir 1. júní 2015.
Umsóknir sendist til:
Listasalur Mosfellsbæjar
Kjarna, Þverholti 2
270 Mosfellsbæ
Einnig er hægt að senda umsókn á netfangið listasalur@mos.is
Tengt efni
Listamarkaður í desember 2024
Listasalur Mosfellsbæjar kallar eftir listafólki til að taka þátt í jólamarkaði 2024.
Nafnasamkeppni Listasalar Mosfellsbæjar
Listasalur Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum fyrir sýningarárið 2025 - Umsóknarfrestur til 8. júní 2024
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2024.