Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
20. október 2023

Þriðju­dag­inn 24. októ­ber er boð­að til Kvenna­verk­falls.

Á fjórða tug sam­taka kvenna, hinseg­in fólks og launa­fólks standa fyr­ir því og kon­ur og kvár sem það geta leggja nið­ur störf. Mos­fells­bær tek­ur und­ir meg­in­markmið þessa bar­áttu­dags um að hefð­bund­in kvenna­störf skuli met­in að verð­leik­um, jafnt laun­uð sem og ólaun­uð. Þess má geta að Mos­fells­bær hef­ur inn­leitt jafn­launa­stefnu og feng­ið jafn­launa­vott­un og ber að greiða jöfn laun fyr­ir jafn­verð­mæt störf óháð kyni og öðr­um þátt­um.

Við­bú­ið er að verk­fall­ið hafi áhrif á þjón­ustu á veg­um bæj­ar­ins, en þjón­usta sem snýr að vel­ferð og ör­yggi fólks verð­ur tryggð.

  • Stjórn­end­ur grunn­skóla, leik­skóla, frí­stund­ar og tón­list­ar­skóla miðla upp­lýs­ing­um til hluteig­andi um fyr­ir­komulag á hverj­um stað fyr­ir sig.
  • Bók­safn Mos­fells­bæj­ar verð­ur ein­göngu opið fyr­ir sjálfsaf­greiðslu.
  • Íþróttamið­stöðv­ar og sund­laug­ar verða opn­ar. Íþrótta­fé­lög miðla sjálf upp­lýs­ing­um varð­andi æf­ing­ar þenn­an dag.

Þess má geta að hlut­fall kvenna og kvár með­al starfs­fólks hjá Mos­fells­bæ er um 75%. Mos­fells­bær ger­ir allt til þess að kon­ur og kvár sem þess óska geti tek­ið þátt í kvenna­verk­falli í sam­ráði við sína stjórn­end­ur.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00