Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar er haldinn ár hvert í kringum fæðingardag Helgu J. Magnúsdóttur sem er 18. september.
Að þessu sinni er dagurinn tileinkaður jafnrétti meðal aldraðra og nú er brugðið út af vananum og dagurinn haldinn hátíðlegur mánudaginn 1. október í samráði við Félag aldraðra í Mosfellsbæ og Félagsstarf aldraðra.
1. október varð fyrir valinu vegna þess að um allt land er verið að fagna Evrópuári um virkni aldraðra og samstöðu kynslóða og því fannst bæjaryfirvöldum og fulltrúum eldri borgara í bænum tilvalið að slá þessu tvennu saman.
Af þessu tilefni verður dagskrá í Krikaskóla kl. 15.30 – 16.30 og eru allir bæjarbúar velkomnir.
Dagskráin er sem hér segir:
- 15:30 – Ávarp bæjarstjóra
Haraldur Sverrisson - 15:35 – Atriði frá börnum í Krikaskóla
Umsjón hefur starfsfólk Krikaskóla - 15:40 – Kynning á starfsemi FaMos
Ragnheiður Stephensen, formaður FaMos - 15:50 – Kynning á starfsemi Félagsstarfs eldri borgara
- 16:00 – Virkni aldraðra og samstaða kynslóða
Umræður um möguleg samstarfsverkefni í Mosfellsbæ - 16:10 – Viðhorfskönnun meðal eldra fólks í Mosfellsbæ
Sigríður Indriðadóttir, jafnréttisfulltrúi kynnir niðurstöður - 16:25 – Afhending jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar
Fulltrúar fjölskyldunefndar - 16:30 – Dagskrárlok
Að lokinni dagskrá er hægt að rölta um skólann og skoða það starf sem þar fer fram.
Fundarstjóri er Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri og jafnréttisfulltrúi Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023 – framlengdur umsóknarfrestur
Velferðarnefnd, sem fer með hlutverk jafnréttisnefndar, auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Tilnefningar til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023
Velferðarnefnd auglýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023.
Upptaka frá jafnréttisdegi Mosfellsbæjar 2022
Jafnréttisdagur Mosfellsbæjar var haldinn hátíðlegur í Hlégarði 22. september 2022.