Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
11. apríl 2014

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar veitti í gær 10 ung­menn­um styrk til að stunda sína íþrótt, tóm­st­und eða list yfir sum­ar­tím­anna.

Í ár sóttu um, 11 stúlk­ur og 7 strák­ar. Við val­ið styðst nefnd­in við regl­ur sem byggja á vilja Mos­fells­bæj­ar til að koma til móts við ung­menni sem, vegna tóm­stunda sinna, geta ekki með sama hætti og jafn­aldr­ar þeirra stundað laun­uð störf. Þessi meg­in­regla auk regl­unn­ar um að jafna beri styrkj­um milli kynja, ald­urs­hópa, list-, íþrótta- og tóm­stunda­greina er það sem að íþrótta og tóm­stund­ar­nefnd styðst við þeg­ar að val­ið er í þenn­an hóp. Um­sækj­end­ur áttu það all­ir sam­eig­in­legt að þau lang­ar og þurfa að nota sum­ar­tím­ann til æf­inga, koma fram á við­burð­um eða vera við keppni.

Í staf­rófs­röð eru styrk­haf­ar þess­ir:

  • Arna Rún Kristjáns­dótt­ir til að stunda golf
  • Ág­ústa Dóm­hild­ur Karls­dótt­ir til að stunda fiðlu­leik
  • Brynja Hlíf Hjalta­dótt­ir til að stunda motorcross
  • Ein­ar Aron Fjalars­son til að stunda töfra­brögð
  • Emil Tumi Víg­lunds­son til að stunda götu­hjól­reið­ar
  • Guð­rún Elísa­bet Björg­vins­dótt­ir til að stunda list­skauta
  • Heiða Rut Hall­dórs­dótt­ir til að stunda hóp­fim­leika
  • Kristín Þóra Birg­is­dótt­ir til að stunda knatt­spyrnu
  • Magnús Þór Sveins­son til að stunda pí­anó­leik
  • Thelma Dögg Grét­ars­dótt­ir til að stunda blak

Á mynd­ina vant­ar Örnu Rún og Emil Tuma.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00