Íþrótta- og tómstundanefnd auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir.
Öll ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára, með lögheimili í Mosfellsbæ, sem skara fram úr og hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrkinn. Markmið styrksins er tvíþætt:
- að gefa einstaklingum sömu tækifæri og jafnöldrum þeirra til að njóta launa frá bænum á sama tíma og þau stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann.
- að gefa einstaklingum tækifæri til að einbeita sér frekar að list sinni, íþrótt eða tómstund til að ná meiri færni og árangri.
Íþrótta- og tómstundanefnd horfir til eftirfarandi þátta þegar styrkjum er úthlutað:
- Umsögn þjálfara, kennara eða annars leiðbeinanda umsækjanda þarf að fylgja með umsókninni. Í umsögninni þurfa að koma fram upplýsingar um ástundun, hæfileika, virkni og framkomu umsækjandans.
- Koma þarf fram í umsókninni með hvaða hætti styrkurinn nýtist, hvernig hann auðveldi umsækjanda að stunda list sína, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann og af hverju hann sé umsækjenda mikilvægur til að geta stundað æfingar til að auka færni og ná frekari árangri
- Nefndin skal gæta jafnræðis við val á styrkþegum bæði hvað varðar kynferði sem og milli listgreina og íþrótta- og tómstundagreina. Þessa jafnræðis skal gætt innbyrðis við hverja úthlutun sem og á milli ára.
- Árlega veitir Íþrótta- og tómstundanefnd styrki til 3-5 einstaklinga, breytilegt milli ára þar sem kostnaður fer eftir aldri styrkþega.
Styrkurinn er fólginn í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar. Fyrir unglinga á grunnskólaaldri er greitt í samræmi við samþykktan taxta Vinnuskólans. Eldri hópurinn fær greitt í samræmi við önnur sumarátaksstörf hjá Mosfellsbæ.
Skilafrestur er til og með 14. mars 2013.
Tengt efni
Erna Sóley afreksíþróttamaður 2024
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar afhentur í Hlégarði
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar var afhentur í Hlégarði fimmtudaginn 27. júní.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir 12. júní 2024
Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.