Í ágústmánuði ætlar Hlynur Guðmundsson frjálsíþróttaþjálfari að bjóða öllum 6-12 ára börnum í Mosfellsbæ (og næsta nágrenni) að koma og reyna fyrir sér íslenskri glímu.
Gerð hafa verið mörg belti fyrir þennan aldur og verður Hlynur með þau á Varmárvelli þriðju-, miðviku- og fimmtudaga allan ágústmánuð kl. 14:00 – 15:30. Hlynur verður á staðnum og leiðbeinir.
Þátttökugjald er kr. 3.000, innifalið að glíma alla þessa daga í ágúst.
Ef áhugahópur verður til, er hugmyndin að glíma oftar næsta vetur.