Bæjarhátíð Mosfellsbæjar Í túninu heima verður haldin dagana 25. – 27. ágúst.
Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í fjölbreyttri dagskrá. Mosfellsbær verður 30 ára þann 9. ágúst og stefnt er að hinum ýmsu viðburðum tengdum afmælinu frá 9. ágúst og fram yfir bæjarhátíð.
Íbúar, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ eru hvött til að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum.
Ef einhverjir luma á hugmyndum eða vilja vera með viðburði, þá endilega sendið tölvupóst á ituninuheima[hja]mos.is
Tengt efni
Einstök stemming Í túninu heima
Bæjarhátíðin okkar Í túninu heima heppnaðist einstaklega vel og var þátttakan frábær að vanda.
Starfsaldursviðurkenningar veittar á hátíðardagskrá
Á hátíðardagskrá sem var haldin í Hlégarði í gær, í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima fengu fimm starfsmenn Mosfellsbæjar starfsaldursviðurkenningu.
Metþátttaka á setningarathöfn Í túninu heima 2023
Metþátttaka var á setningarathöfn bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ í gærkvöldi.