Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi. Nú hillir í vorið og því tímabært að fjarlægja rusl eftir veturinn. Starfsfólk Áhaldahúss verður á ferðinni á þessu tímabili og fjarlægir garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Fólk er hvatt til að setja garðaúrgang í poka og binda greinaafklippur í knippi. Íbúar eru minntir á að klippa hekk og tré sem ná út yfir gangstéttir og stíga.
Gámar fyrir garðaúrgang verða einnig aðgengilegir á þessu tímabili í hverfum bæjarins og verða þeir staðsettir á eftirtöldum stöðum:
- Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts (milli Akurholts og Arnartanga)
- Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði við Bogatanga
- Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut ofan Reykjavegar
- Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún
- Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi
- Leirvogstunga – á afleggjara að Kiwanishúsi
- Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg.
Hreinsunardagur á opnum svæðum 20. apríl
Laugardaginn 20. apríl verður hreinsunarátak á opnum svæðum bæjarins og meðfram nýbyggingarsvæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar munu að venju aðstoða við hreinsunina. Íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að taka þátt.
– Umhverfissvið Mosfellsbæjar