Dagana 11. apríl – 2. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda vorið á næsta leiti.
Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að huga að umhverfinu og hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi.
Hreinsun gróðurs og lóða
Meðan á hreinsunarátakinu stendur er gott tækifæri fyrir íbúa að taka til hendinni í garðinum og snyrta runna og beð og eru þeir sérstaklega hvattir til að klippa hekk og tré sem ná yfir gangstéttar og stíga, en þetta hefur verið vaxandi vandamál undanfarin ár.
Gámar fyrir garðaúrgang verða aðgengilegir á þessu tímabili í hverfum bæjarins á eftirtöldum stöðum:
- Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts (milli Akurholts og Arnartanga)
- Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði við Bogatanga
- Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut ofan Reykjavegar
- Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún
- Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi og við Snæfríðargötu
- Leirvogstunga – Á afleggjara að Kiwanishúsi
- Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg
Gatna- og stígahreinsun
Á þessu tímabili mun einnig fara fram þvottur og sópun gangstétta og gatna bæjarins. Í fyrstu verða stofngötur og stígar ásamt stofnanaplönum sópuð og í framhaldi verður farið inn í hverfi bæjarins og verða merkingar settar á áberandi staði áður en sú vinna hefst. Til að þetta verði sem best gert þurfum við á aðstoð íbúa að halda með því að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur.
Hreinsunardagar á opnum svæðum 13. – 14. apríl
Helgina 13.-14. apríl verður ráðist í hreinsunarátak á opnum svæðum bæjarins og meðfram nýbyggingarsvæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar munu að venju aðstoða við hreinsunina og taka vel til hendinni.
Allir íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátaki Mosfellsbæjar og hjálpast að við að gera bæinn fallegan og snyrtilegan fyrir sumarið.
– Umhverfissvið Mosfellsbæjar
Tengt efni
Hreinsunarátak framlengt
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 8. - 14. maí 2024
Dagana 8. – 14. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ.
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 15. - 30. apríl 2023
Dagana 15. – 30. apríl verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda vorið á næsta leiti.