Vorið er komið og dagana 11. apríl – 2. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ.
Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar hvattir til að huga að umhverfinu og hreinsa í kringum hús sín og næsta umhverfi.
Hreinsun gróðurs og lóða
Meðan á hreinsunarátakinu stendur er gott tækifæri fyrir íbúa að taka til hendinni í garðinum og snyrta runna og beð og eru þeir sérstaklega hvattir til að klippa hekk og tré sem ná inn yfir gangstéttir og stíga, en þetta hefur verið vaxandi vandamál undanfarin ár.
Gámar fyrir garðaúrgang verða aðgengilegir á þessu tímabili í hverfum bæjarins á eftirtöldum stöðum:
- Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts (milli Akurholts og Arnartanga)
- Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði við Bogatanga
- Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut ofan Reykjavegar
- Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún
- Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi
- Leirvogstunga – á afleggjara að Kiwanishúsi
- Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg.
Gatna- og stígahreinsun
Nú þegar er hafinn þvottur og sópun gangstétta og gatna bæjarins, og er áætlað að ljúka því fyrir páska. Í fyrstu verða stofngötur og stígar ásamt stofnanaplönum sópaðar og í framhaldi verður farið inní hverfi bæjarins og verða merkingar settar á áberandi staði áður en sú vinna hefst. Til að þetta verði sem best gert þurfum við á aðstoð íbúa að halda með því að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur.
Hreinsunardagar á opnum svæðum 12. – 13. apríl
Helgina 12.-13. apríl verður ráðist í hreinsunarátak á opnum svæðum bæjarins og meðfram nýbyggingarsvæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar munu að venju aðstoða við hreinsunina og taka vel til hendinni.
Allir íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátaki Mosfellsbæjar og hjálpast að við að gera bæinn fallegan og snyrtilegan fyrir sumarið.
– Umhverfissvið Mosfellsbæjar
Tengt efni
Hreinsunarátak framlengt
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 8. - 14. maí 2024
Dagana 8. – 14. maí verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ.
Hreinsunarátak í Mosfellsbæ 15. - 30. apríl 2023
Dagana 15. – 30. apríl verður hreinsunarátak í Mosfellsbæ enda vorið á næsta leiti.