Í sumar var boðin út uppsetning, rekstur og fjölgun hleðslustöðva í Mosfellsbæ.
Hleðslustöðvarnar átta eru nú allar komnar í notkun og eru þær á eftirfarandi stöðum:
- Jarðlínan (E1): Krikaskóla, Hamrahlíð og íþróttamiðstöðin við Lágafellsskóla
- Rafmáni (E1): Íþróttamiðstöðin að Varmá
- Ísorka: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
- Orka náttúrunnar: Helgafellsskóli, Þverholt 2 og Golfklúbbur Mosfellsbæjar við Æðarhöfða
Fjölgun hleðslustöðvanna er í samræmi við loftslagsmarkmið Mosfellsbæjar sem miða að því að auðvelda almenningi að draga úr losun og þar eru umhverfisvænni samgöngur mikilvægur hluti.
Leiðbeiningar um hvernig á að hlaða má finna á vefsíðum þjónustuaðila: