Þriðjudaginn 18. september er BMX-dagur á Miðbæjartorgi Mosfellsbæjar kl. 17:00 – 19:00.
BMX kappar sýna listir sínar á nýju pump track brautinni sem hentar jafnt reiðhjólum, hlaupahjólum, BMX-hjólum, hjólabrettum og línuskautum.
Hjólaþrautir og BMX sýning á Miðbæjartorginu við Þverholt í tilefni af samgönguviku 16. – 22. september.
Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga.