Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða og menningarmála árið 2021.
Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar sérstaklega eftir umsóknum sem efla nýsköpun á sviði lista og menningar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
- Fjárframlög til almennrar listastarfsemi.
- Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2021 á þjónustugátt Mosfellsbæjar.
Niðurstöður Menningar- og nýsköpunarnefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl 2021 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Tengt efni
Frumkvöðlar óskast!
Lumar þú á frumlegri hugmynd sem gæti gert gott samfélag enn betra?
Styrkir veittir til efnilegra ungmenna 2024
Á dögunum veitti íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ungmenna á fundi sem haldinn var í Listasal Mosfellsbæjar.
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.