Eftirtalda daga verða gatnahreinsunarfólk að störfum í hverfum bæjarins. Þá verða gangstéttir og götur þvegnar og sópaðar:
- 22. apríl – Reykja- og Krikahverfi
- 23. og 25. apríl – Teiga- og Helgafellshverfi
- 28. apríl – Holtahverfi
- 29. apríl – Tangahverfi
- 30. apríl – Hlíða- og Hlíðartúnshverfi
- 2. maí – Höfðahverfi
- 5. maí – Leirvogstunguhverfi
Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur.
Enn fremur eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa í kringum híbýli sín og fá aðstoð starfsfólks þjónustumiðstöðvar í síma 525-6700 til að fjarlægja bílhræ og stærri hluti.