Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar minnir á að enn er hægt að sækja um frístundaávísun til lækkunar kostnaðar við íþrótta- og tómstundaiðkun 6-18 ára barna og ungmenna.
Foreldrar og forráðamenn sem ekki hafa nýtt frístundaávísun skólaársins eru hvattir til þess að nýta hana fyrir 31. maí.
Frístundaávísun vegna skólaársins 2018-2019 er hægt að nýta til 31. maí.
Frístundaávísun skólaársins 2019-2020 er aðgengileg frá 15. ágúst 2019.