Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
19. júlí 2022

Fram­kvæmd­ir eru að hefjast við seinni áfanga við end­ur­nýj­un Vest­ur­lands­veg­ar.

Verk­ið (Hring­veg­ur(1) Langi­tangi – Reykja­veg­ur) er sam­starfs­verk­efni Vega­gerð­ar­inn­ar og Mos­fells­bæj­ar.

Verk­tak­ar við verk­ið eru Loftorka Reykja­vík ehf.

Í þess­um áfanga verð­ur Vest­ur­lands­veg­ur breikk­að­ur í norð­ur­átt og verð­ur klöpp­in í veg­stæð­inu los­uð með spreng­ing­um og fleyg­un. Í þess­um verk­hluta verða stór­ir há­spennu­streng­ir end­ur­nýj­að­ir en þess­ir streng­ir liggja í nú­ver­andi ak­braut. Þessi vinna mun standa yfir næstu mán­uði en ætti að ljúka í sept­em­ber.

Að­gerð sem þess­ari fylg­ir alla jafn­an tölu­vert ónæði fyr­ir nær­liggj­andi íbúa og fyr­ir­tæki. Bæði vegna bor­un­ar sem og sjálfra spreng­ing­anna. Verktaki mun kapp­kosta að lág­marka ónæði og óþæg­indi fyr­ir ná­granna vinnusvæð­is­ins eins og mögu­legt er. Bæði með að­gerð­um á verkstað sem og að haga vinnu­tíma á þann hátt að lág­marka óþæg­indi.

Vinnu­tími er frá mánu­degi til föstu­dags. Ekki verð­ur sprengt á um­ferðarálags­tím­um en stöðva þarf um­ferð með­an sprengt er, inn­an við 5 mín. í hvert skipti.

Reikna má með að sprengt sé einu sinni til tvisvar á dag og verð­ur sprengt á tíma­bil­inu frá kl 9:30 til 17:00.

Gef­in verða hljóð­merki fyr­ir og eft­ir spreng­ing­ar. Fyr­ir spreng­ingu verða gef­in 3 hljóð­merki í 7 – 10 sek­únd­ur og eft­ir spreng­ingu verð­ur gef­ið sam­fellt hljóð­merki í 20 sek­únd­ur.

Verk­stjóri Loftorku á verkstað er Magnús Stein­gríms­son, sími 892-5161.

  • Verk­tak­ar Loftorka Reykja­vík ehf, sími 581-3522.
  • Eft­ir­lits­að­ili Vega­gerð­ar­inn­ar á verkstað er Hnit verk­fræði­stofa (Jón Svan), sími 570-0500.
  • Full­trúi Vega­gerð­ar­inn­ar er Hösk­uld­ur Tryggvason, sími 522-1000.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00