17. mars 2010 gaf Mosfellsbær út framkvæmdaleyfi til handa Vegagerðinni fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar og tengdum framkvæmdum.
Mosfellsbær hefur þann 17. mars 2010 gefið út framkvæmdaleyfi skv. 27. gr. skipulags- og byggingarlaga til Vegagerðarinnar fyrir tvöföldun Hringvegar(1) frá Hafravatnsvegi (Reykjavegi) að Þingvallavegi og tengdum framkvæmdum, þ.e. stækkun hringtorgs við Álafossveg, breikkun brúar á Varmá, lengingu undirganga vestan Varmár og við Ásland, gerð reið-, göngu- og hjólastíga meðfram Hringvegi og gerð nýrra hljóðmana milli vegar og byggðar sunnan Áslands ásamt endurbótum á hljóðmön norðan Áslands.
Með úrskurði skipulagsstjóra ríkisins 23. október 1995 var með skilyrðum fallist á framkvæmdir við Hringveg frá bæjarmörkum við Reykjavík að Þingvallavegi, eins og þær höfðu verið kynntar í frummatsskýrslu. Framkvæmdaleyfið tekur til hluta þeirra framkvæmda og skal leyfishafi hlíta skilyrðum í úrskurði skipulagsstjóra, sem birtur er á skipulag.is.
Veiting framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að kæranda varð kunnugt um ákvörðunina. Þeir einir geta þó kært hana, sem eiga lögvarinna hagsmuna að gæta.
18. mars 2010
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar