Menningar- og nýsköpunarnefnd auglýsir eftir umsóknum um þróunar- og nýsköpunarviðurkenningu Mosfellsbæjar 2019.
Hér er um að ræða tækifæri fyrir frumkvöðla sem hafa hugmyndir umnýsköpun til að koma verkefni sínu á framfæri. Viðurkenningin felst ekkieingöngu í þeirri athygli sem hún vekur heldur er einnig um að ræðafjárhagslegan styrk.
Umsækjendur verða að uppfylla eftirfarandi:
- Einstaklingur eða fyrirtæki með lögheimili í Mosfellsbæ.
- Einstaklingur eða fyrirtæki sem leggja fram þróunar- eða nýsköpunarhugmynd sem gagnast fyrirtækjum eða stofnunum í Mosfellsbæ, málefnum eða verkefnum sem tengjast Mosfellsbæ sérstaklega.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2019.
Sótt er um rafrænt á vef Mosfellsbæjar þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um forsendur og viðmið.