Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar fyr­ir árið 2013 var lögð fram til seinni um­ræðu og sam­þykkt í bæj­ar­stjórn í gær 21. nóv­em­ber.

Gert er ráð fyr­ir já­kvæðri rekstr­arnið­ur­stöðu sam­stæð­unn­ar sem nem­ur rúm­lega 33 mkr.

Megin­á­hersl­ur í fjár­hags­áætlun 2013 eru hér eft­ir sem hing­að til að standa vörð um þá grunn- og vel­ferð­ar­þjón­ustu sem veitt er af stofn­un­um bæj­ar­ins. Í fjár­hags­áætl­un­inni fyr­ir árið 2013 er ver­ið að leggja meiri fjár­muni í þjón­ust­una en nem­ur verð­lags­hækk­un­um sem von­andi verð­ur til þess að bæta þjón­ustu við íbúa enn frek­ar.

Fjár­hags­staða Mos­fells­bæj­ar er traust og rekst­ur­inn hef­ur stað­ist álag und­an­far­inna ára. Hóf­leg en stöðug íbúa­fjölg­un hef­ur ver­ið und­an­farin ár þrátt fyr­ir erfitt ár­ferði og sýn­ir það styrk og vin­sæld­ir sveit­ar­fé­lags­ins. Afar mik­il­vægt er að sýna áfram ábyrgð í rekstri nú þeg­ar bær­inn fer að skila já­kvæðri rekstr­araf­komu eins og stefnt hef­ur ver­ið að. All­ir stjórn­end­ur sviða og stofn­ana hafa lagt sitt af mörk­um til að koma Mos­fells­bæ í gegn­um þær miklu efna­hags­þreng­ing­ar sem hafa dun­ið á lands­mönn­um öll­um síð­ustu ár. Sú vinna er að skila sér og sést í metn­að­ar­fullri fjár­hags­áætlun þar sem stefnt er að því að skila rekstr­ar­hagn­aði á næsta ári.

Bætt þjón­usta við unga sem aldna

Upp­bygg­ing á sér stað í Mos­fells­bæ og gert er ráð fyr­ir að fjór­ar stór­ar bygg­ing­ar­fram­kvæmd­ir verði í gangi á ár­inu 2013.  Bygg­ing hjúkr­un­ar­heim­il­is sem gert er ráð fyr­ir að tekin verði í notk­un á ár­inu. Þjón­ustumið­stöð fyr­ir aldr­aða á Hlað­hömr­um verð­ur einn­ig tekin í notk­un og mun hún hafa mik­il áhrif á fé­lags­st­arf aldr­aðra á bæn­um. Bygg­ing fram­hald­skóla í sam­vinnu við rík­ið er í full­um gangi og gert er ráð fyr­ir að skól­inn verð tek­inn í notk­un í janú­ar 2014. Ákveð­ið var á ár­inu að ráð­ast í bygg­ingu á nýj­um íþrótta­sal við Varmá sem hýsa mun að­stöðu fyr­ir fim­leika og bar­dag­aí­þrótt­ir. Sú fram­kvæmd mun fara af stað á nýju ári. Óhætt er að full­yrða að að­staða fyr­ir fram­hald­skóla­nema, eldra fólk og bætt að­staða til íþrótta­iðkun­ar barna og ung­linga, mun nýt­ast flest­um heim­il­um í Mos­fells­bæ á einn eða ann­an hátt.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00