Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2022 og næstu þrjú ár þar á eftir var samþykkt í bæjarstjórn þann 8. desember 2021.
Áformað er að bæjarsjóður verði rekinn með 203 m.kr. afgangi á næsta ári.
Fjárhagsáætlun ársins 2022 ber merki aukinna efnahagslegra umsvifa eftir það högg sem heimsfaraldur kórónaveirunnar er og þeirrar viðspyrnu sem Mosfellsbær hefur náð með ráðdeild í rekstri. Ráðdeildin hefur beinst að því að tryggja óbreytta eða aukna þjónustu auk áframhaldandi uppbyggingu innviða án þess að ganga of langt í lántöku. Þá endurspeglar áætlun næsta árs vel þá staðreynd að sveitarfélagið hefur burði til að mæta fjárhagslegum áföllum síðustu tveggja ára.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri:
„Markmið okkar í Mosfellsbæ við upphaf heimsfaraldursins var að ná viðspyrnu og verja þjónustu við íbúa. Fjárhagsáætlun ársins 2022 ber þess skýr merki að þeim markmiðum er náð sem endurspeglar í senn sterka stöðu sveitarfélagsins til að mæta tímabundnum fjárhagslegum áföllum. Í fjárhagsáætlun ársins 2022 er gert ráð fyrir um 171 m.kr. afgangi af rekstri sveitarfélagsins. Þessi árangur næst ekki fyrir tilviljun heldur vegna þess að starfsfólki undir forystu bæjarstjórnar hefur tekist að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttu fjárhagslegu umhverfi án þess að skerða þjónustu og jafnframt hefur verið bætt í þjónustuna í nokkrum tilfellum. Vegna þessa árangurs getum við farið í frekari uppbyggingu m.a. á sviði fræðslumála og íþróttamála eins og fjárhagsáætlunin ber með sér þegar kemur að hönnun og byggingu nýs leikskóla í Helgafellshverfi, byggingu íþróttahúss við Helgafellsskóla og nýrrar þjónustubyggingar við íþróttamiðstöðina að Varmá.“
Helstu áherslur í fjárhagsáætlun 2022 eru:
- Að afgangur verði af rekstri bæjarins þrátt fyrir að tekjur hafi lækkað vegna kórónaveirufaraldursins.
- Að álagningarhlutföll fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði og atvinnurekstur lækki.
- Að nýjum lóðum í Helgafellshverfi og á miðbæjarsvæði verði úthlutað fyrir fjölbreyttar íbúðargerðir.
- Að gjaldskrár breytist í samræmi við breytingar á verðlagi og hækki því ekki að raungildi. Leikskólagjöld lækki um 5%.
- Að hafin verði bygging nýs leikskóla í Helgafellshverfi og íþróttahúss við Helgafellsskóla.
- Að hafin verði bygging þjónustubyggingar við íþróttamiðstöðina að Varmá.
- Að dagvistunargjöld allra barna frá 12 mánaða aldri verði þau sömu óháð vistunarformi.
- Að félagslegum íbúðum fjölgi.
- Að hafnar verði framkvæmdir við stækkun hjúkrunarheimilisins Hamra.
- Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 1.476 m.kr. eða 9,5% af heildartekjum.
- Framkvæmt verður fyrir um þrjá milljarða til að byggja upp innviði og efla samfélagið.
- Skuldir sem hlutfall af tekjum munu lækka og skuldaviðmiðið verður 100,2% af tekjum í árslok.
- Álagningarhlutfall útsvars verður 14,48% sem er undir leyfilegu hámarki.
- Íbúar eru 13.000 og mun fjölga um allt að 3,5% á næsta ári.
Tengt efni
Aukin vetraropnun kaffistofu Samhjálpar
Neyðarkallinn til styrktar björgunarsveitinni Kyndli
Mosfellsbær styrkir Björgunarsveitina Kyndil með því að kaupa Neyðarkallinn 2024.
Bókun samtala hjá velferðarsviði