Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða og menningarmála árið 2020.
Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar sérstaklega eftir umsóknum sem efla nýsköpun á sviði lista og menningar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
- Fjárframlög til almennrar listastarfsemi.
- Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 11. mars 2020 á íbúagátt Mosfellsbæjar.
Niðurstöður Menningar- og nýsköpunarnefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl 2020 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Tengt efni
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.
Styrkir til efnilegra ungmenna í Mosfellsbæ 2024 - Umsóknarfrestur til 1. mars
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir yfir sumartímann.
Styrkir vegna listviðburða og menningarmála árið 2024 - Umsóknarfrestur til 1. mars
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar.